|
|
26.10.2009 14:43:18 / Sigga Schatz
Mig langaði bara að láta ykkur vita að ég sit enn bara heima og bíð eftir að litla krílið mitt ákveði að leggja leið sína í þennan ógurlega heim... Spurning um að þið komið bara í heimsókn og reynið með öllum ráðum að koma mér af stað ;o) Það er búið að senda tilvísun á Fæðingardeild LSH og fékk ég SMS á föstudaginn um að Gangsetningarbeyðni fyrir mig hafi verið móttekin, nú bíð ég líka eftir símtali frá LSH þar sem ég verð annað hvort boðuð bara beint í gangsetningu, nú eða einhverja skoðun svo hægt verði að taka ákvörðun um framhaldið... Það bendir margt til þess að þetta dragist allt yfir í nóvember og þegar ég sagði Nikola Kristni að það væri möguleiki að barnið fæddist í nóvember, hikaði hann ekki við að óska eftir 29. Nóvember!!!
Látum þetta duga í bili og vonandi verður næsta færsla frétt af fæðingunni ;o)
»
13.10.2009 10:44:08 / Sigga Schatz
Jæja, verður maður ekki að pósta inn smá óléttufréttum??? Svona fyrir alla sem ekki vissu það, þá er ég ófrísk... heheheh gvöð hvað maður getur verið sniðugur!!!
Ég fór í skoðun síðast þann 7. okt og þarf ekki að mæta aftur fyrr en 21. okt og þá er ég sko komin rúmar 40 vikur... Mér finnst alveg ótrúlegt hvað er langt á milli skoðana svona þessar síðustu vikur og bæði tengdó og Freyja syss urðu svo reiðar fyrir mína hönd að ég þorði ekki annað en að reyna að fá aukaskoðun í vikunni... Ljósan var að hringja í mig og ég á að mæta til hennar í dag um tvö... Ég held að allt sé í lagi með, en það er vissara að láta kikka aðeins á sig, þegar maður er orðinn svona gamall og óléttur ;o)
Ég er alveg búin að hafa það þokkalega gott, ég er alveg spræk, þó að mér finnist ég vera orðin alveg óskaplega ólétt og algerlega að springa!!! Heiða Máney er náttúrulega móðursjúk og vill helst alltaf láta halda á sér og mamma þarf helst að gera allt fyrir hana, en mömmu er farið að finnast hin léttustu verk alveg hreint ógurlega erfið, eins og bara að koma henni í bólið á kvöldin... Ótrúlega erfitt!!! Þannig að ég er farin að hlakka gífurlega til að fá litla krílið bara í hendurnar og eiga auðveldara með að koma mér frá A til B og gera einfalda hluti eins og skipta um bleiu!!!
Það er allt að smella með hreiðurgerð, búin að þvo og strauja... Það er reyndar eitt sem er ekki alveg að smella hjá mér, ég er alltaf að reyna að setja niður í "töskuna" en ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að taka með mér... Ég er sko búin að setja niður náttföt, föt til að fara í heim, heimferðargallan á litla krílið og svo er ég eitthvað farin að setja niður í snyrtitösku inn á baði, þar sem allt á að vera og ég kippi bara með mér þegar ég bruna niður á spítala...
Annars var litla krílið ekki búið að skorða sig þegar ég fór í skoðun síðast, sem gerir það að verkum að ég er ekkert að fara að bruna niður á fæðingardeild ef ég missi vatnið... og ég verð nú alveg að viðurkenna að mér finnst tilhugsunin að missa vatnið, þurfa að leggjast niður og bíða eftir að einhverjir sjúkraflutningamenn komi og haldi á mér í börum niður þrjár hæðir ekkert sérstaklega spennandi... En kannski er bara gaman að prófa það líka ;o)
Að lokum verð ég nú að koma með smá samanburð fyrir ykkiur er það ekki???

Er ekki annars gaman að fá svona samanburð??? Spurning hvort bumbulögunin hefur eitthvað um innihaldið að segja ;o) Fyrri myndin er Heiða Máney á 40. viku, seinni myndin er tekin núna á 39. viku
Ég vona að það verði ekki svona langt í næstu skrif, en þá ætla ég að færa ykkur fréttir af krílinu ;o)
»
08.09.2009 13:52:40 / Sigga Schatz
Ég fór í mæðraskoðun í dag... Það gekk bara mjög vel, hjarslátturinn hjá krílinu er kröftugur, blóðþrýstingurinn hjá mér er fínn og bumban stækkar eins og hún á að gera, en ég er orðin frekar lág í járni og ég þarf að vera dugleg að borða járnríka fæðu... Hvað annað en blóðmör, lifur og brokkolí er járnríkt??? Þarf svoooo að gúggla það  Ég léttist reyndar líka um tæp tvö kíló á milli skoðanna, sem féll nú ekkert allt of vel í kramið hjá ljósunni, en hún heldur að það sé bjúgurinn sem var kominn síðast, hann hefur nefnilega minnkað, enda er ég komin á fullt aftur í bumbusundinu og búin að minnka vinnuna niður í 50%
En ég ætla ekkert að vera að hafa þetta lengra í bili... Mér sýnist afskaplega fáir lesa þetta blogg mitt, þannig að það er alveg spurning hvort ég haldi þessu eitthvað áfram...
»
26.08.2009 10:39:29 / Sigga Schatz
Það er alltaf sama sagan... Maður er með einhverjar ægilegar yfirlýsingar og stendur svo ekki við neitt ;o) Eina afsökunin sem ég hef núna er sú að ég er búin að vera í sumarfríi og hef verið alveg ótrúlega lítið tengd við netheima síðustu vikur... Hef reyndar alltaf gefið mér tíma í að kikka á fésið, en einhvernvegin svikið vini mína sem ekki eru tengdir við þann ósköpnuð ;o)
Fyrir sumarfrí fór ég í sykurþolspróf, það var að sjálfsögðu hundleiðinlegt... Ég sat á ganginum á Rannskókn, niðri á Borgarspítala, í leisíboj í heila tvo klukkutíma og lét taka úr mér blóð þrisvar sinnum... Daginn eftir fór ég svo í mæðraskoðun þar sem allt kom vel út, bumban stækkar eðlilega og allt í gúddí... Ljósan hringdi líka niður á rannskókn til að fá niðurstöðurnar úr sykurþolsprófinu og þær voru sko ekki af verri endanum... ÉG ER EKKI MEÐ MEÐGÖNGUSYKURSÝKI og ég er svo ÁNÆGÐ MEÐ LÍFIÐ!!! Þetta gerði það að verkum að ég sveif í sæluvímu inn í sumarfríið og var alveg sama þó að við eltum leiðinlega veðrið ;o)
Sumarfríinu var eytt austur á Eskifirði, á ættarmóti, þar sem afkomendur ömmu Gógóar og afa Óskars hittust og áttu saman góðar stundir. Á Akureyri, þar sem litla skottið varð veikt og við hjónaleysin skiptumst á að vera bara heima hjá Freyju syss með hana, þar sem hitinn var svo hár að ekki var hættandi á að fara með hana út... En á endanum ákváðum við að bruna með hana til Reykjavíkur og beint á barnaspítalann, þar sem í ljós kom að hún var ekki með neitt alvarlegt... Bara hita... Svo var komið að því að veislustýra brúðkaupi ársins og að lokum fórum við í slökun í Grímsnesið, þar sem við létum okkur líða óskaplega vel....
Í sumarfríinu tókst mér síðan að gleyma að fara í mæðraskoðun... átti að mæta 11. ágúst, en var svo slök í bústað að ég steingleymdi því ;o) Fékk svo bara nýjan tíma hjá Ljósunni minni og fór til hennar í gær... Ég er farin að fá bjúg og smá gliðnun, þannig að ljósan ætlar að senda mig til læknis í frekari skoðun... Aldrei að vita nema ég þurfi að fara að minnka við mig vinnu... Það er dáldið annað að vera bomm núna og þurfa að hlaupa á eftir einni 18 mánaða en var síðast, þar sem maður bara kom heim eftir "erfiðan" vinnudag og lagðist upp í sófa í afslöppun ;o)
Ég segji ykkur svo frá læknisskoðuninni þegar ég er búin þar ;o)
»
17.07.2009 13:27:43 / Sigga Schatz
Það er alltaf sama sagan, þegar maður ætlar að fara að vera voða bloggari, þá hættir tölvan að virka... Fína flott hvíta Dell tölavan hætti að hleypa mér á netið, þannig að ég varð að gjöra svo vel og fara með hana í viðgerð og það kostaði að sjálfsögðu sitt... En talandi um kostnað og fjárútlát, þá er það náttúrulega alltaf þannig að það kemur allt í einu... Fyrst þurftum við að fara með bílinn í þjónustutékk, það kostar nú bara annan handlegginn, svo lenti ég í smá óhappi á bílnum og skemmdi stuðarann aðeins, það kostaði hinn handlegginn... Til að bæta gráu ofan á svart, þá braut ég tönn og þurfti að sjálfsögðu að fórna tíma og pening í að laga það og ég get sagt ykkur það, að þegar maður er bomm og þarf að fara til tannsa, er sko ekki gaman að vera til!!! Það þurfti að bora fullt og ég fékk enga deyfingu... Nei ég er að segja ykkur það ENGA DEYFINGU!!! Svo var það tölvan... Mér finnst endilega að það hafi verið eitthvað fleira, en ég man það ekki akkúrat núna... En eftir þessi herlegheit sit ég hér, handalaus en með fínar og flottar tennur ;o) Mér varð nú að orði, þegar ég rétti manninum í Heklu kortið mitt, til að borga þjónustuskoðunina, að þarna hefði hann tekið af mér sumarfríið!!!
Talandi um sumarfrí... Ég á bara eftir að vinna í dag, mánudag og þriðjudag og svo er ferðinni heitið austur í fjörðinn fagra þar sem öll systkini múttu túttu og þeirra afkomendur ætla að eiga saman góða helgi... Ég er mikið að spá í að pakka pínu af góða veðrinu niður og kippa með mér, til að vera viss um að vera í blíðu í firðinum fagra ;o)
Já og að lokum verðum við nú aðeins að spjalla um óléttuna, er það ekki???
Þannig er að núna er ég komin tæpar 27 vikur og mér líður bara mjög vel... Ég fer í sund tvisvar í viku og er ég mikið að spá í að taka nokkrar léttar æfingar í sundlauginni á Eskifirði á meðan ég er í fríi ;o) Vona að sundlaugaverðirnir haldi ekki að ég sé orðin endanlega klikk og sendi mig á hæli ;o) Á mánudaginn fer ég í sykurþolspróf... Ég vona að ég sleppi í þetta skiptið við sykursýkina, en samt dettur mér nú líka stundum í hug að ég hafði svo asskoti gott af þessu síðast... Passaði mig svo svakalega vel að ég þyngdist eiginlega ekki neitt... En svona til samanburðar langar mig að sýna ykkur hvað ég var sæt þegar ég var gengin 25 vikur með Heiðu Máneyju og hvernig ég var núna fyrir tveimur vikum ;o)
 
Jæja, hvor er nú flottari???
Bestu kveðjur úr blíðunni Sigga Rósa
»
30.06.2009 22:59:28 / Sigga Schatz
Kæru lesendur!!! (ef einhver kíkir enn hérna inn)
Ég er búin að vera að velta því mikið fyrir mér hvort blogg séu enn inn eða hvort allir séu svo uppteknir af fésbókinni að þeir kíki eigi lengur á bloggfærslur... Þannig er nefnilega mál með vexti að ég var að skoða gamlar bloggfærslur frá mér og mér fannst svo gaman að rifja upp, að ég fór að velta fyrir mér... ef núna er ekki rétti tíminn til að hefja upp raust sína á ný hér á bloggheimum þá er aldrei rétti tíminn!!! Það var færsla síðan í sept 2007 sem kveikti löngunina, en þá tilkynnti ég að ég væri "kona eigi einsömul". Ástæðan fyrir því að ég er að velta fyrir mér að hefja skrif hér að nýju er einmitt sú að... Það vita þetta sennilega allir, en... Heiða Máney er að verða stóra systir!!!
»
13.05.2009 13:35:19 / Sigga Schatz
Ég gerði merkilega uppgötvun í dag. Ég uppgötvaði að bros er jafnsmitandi og flensa. Það brosti til mín alókunnugur maður og ég brosti á móti og hélt svo bara áfram að brosa. Ég labbaði fyrir næsta horn þar sem ég mætti öðrum ókunnugum manni. Þegar hann sá mig brosa, brosti hann á móti og gekk svo brosandi í burtu. Þá laust niður hjá mér þessari staðreynd, ég hafði smitað hann. Guð veit hvað hann hitti marga og smitaði þá. Ég fór að hugsa um þetta bros og skildi þá hversu mikils virði það er. Eitt lítið bros eins og mitt, gæti breiðst út um heimsbyggðina. Svo ef þú finnur að þú ert að bresta í bros, ekki halda aftur af því. Komum af stað faraldri sem fyrst, stefnan er að smita allann heiminn. BROSUM!!!

»
27.04.2009 10:48:11 / Sigga Schatz
...rétt held ég bara 
Segja það annars ekki allir???
Ég allavega fór ekki eftir þessu blessaða prófi sem ég tók á www.mbl.is, ég hlustaði sko nefnilega á viðræður forystumanna flokkanna í Kastljósinu á föstudagskvöldið og eftir að hafa heyrt í honum Ástþóri gat ég bara því miður ekki kosið hann...
Ég dubbaði mig upp á laugardaginn, fór í pils og háhælaða skó og allt... Við hjónaleysin brunuðum svo á kjörstað, gáfum okkur fram við kjörstjórn og fengum þessa fögru gráu miða til að x-a á... Ég kom mér vel fyrir í kjörklefanum, horfði á listana, las nöfnin og hugsaði svo með mér... "Fjandinn hafi það, ég skila bara auðu!!!" ætlaði svo að vippa mér út úr kjörklefanum, en... í því sem ég ætlaði að rífa tjaldið frá gat ég það ekki... Mér fannst ég bara verða að nota atkvæðið mitt betur en svo að skila auðu, þannig að ég gerði X á góðan stað!!!
Vona bara að þið hin hafið gert slíkt hið sama!!!
Áfram Austri!!!
»
24.04.2009 13:36:51 / Sigga Schatz
»
11.02.2009 10:28:55 / Sigga Schatz
Í ljósi þess að síðasta færsla var ekki neitt ógurlega gleðileg og að ástandið í þjóðfélaginu er ekkert allt of spennandi langar mig að skella hérna inn nokkrum góðum lífslexíum...
Lexía 1: Maður fer í sturtu, rétt í þann mund er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir. Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra. Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi. Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi: "Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla". Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga. Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer. Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn. Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn: "Hver var þetta?" "Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar hún. "Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?"
Boðskapur sögunnar: Ef þú deilir mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun
Lexía 2: Prestur bauð nunnu far. Hún settist inn og krosslagði fætur, sem varð til að bera fót hennar. Presturinn missti næstum stjórn á bílnum. Eftir að hafa náð stjórninni aftur, strauk hann hendinni laumulega upp eftir fæti hennar. Nunnan sagði þá: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4". Presturinn dró að sér hendina, en þegar hann skipti um gír strauk hann hendinni aftur upp eftir fæti hennar. Aftur segir nunnan: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4". Presturinn afsakaði sig og sagði: "Fyrirgefðu systir, holdið er veikt". Er þau renna í hlað við klaustrið andvarpar nunnan þunglega og fer sína leið. Þegar presturinn kemur í kirkjuna flettir hann upp Orðskviðunum 10:4. Þar stóð: " Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd".
Boðskapur sögunnar: Ef þú ert ekki vel upplýstur í starfi þínu gætirðu misst af stórkostlegum tækifærum
Lexía 3: Sölumaður, ritari og deildarstjóri eru á leið í mat þegar þau finna fornan olíulampa. Þau nudda lampann og út kemur töfraandi. Andinn segir: "Ég veiti hverju ykkar eina ósk". "Ég fyrst! Ég fyrst!", segir ritarinn. "Ég vil vera á Bahamaeyjum á hraðbát algerlega áhyggjulaus". Og púff! Hún er horfin. "Næst ég! Næst ég!", segir sölumaðurinn. "Ég vil vera á Hawaii að slaka á með einkanuddara og endalausar birgðir af Pina Colada og ástinni minni". Og púff! Hann er horfinn. "Allt í lagi, það er komið að þér", segir andinn við deildarstjórann. Deildarstjórinn segir: "Ég vil að þessi tvö verði komin aftur á skrifstofuna eftir mat".
Boðskapur sögunnar: Alltaf láta yfirmanninn tala fyrst.
»
05.02.2009 13:41:13 / Sigga Schatz
Mig langar að segja ykkur sorgarsögu...
Ég á vinkonu, við erum reyndar ekkert voðalega mikið í sambandi þessa dagana og höfum ekki verið í miklu sambandi síðustu árin, en ég fæ alltaf fréttir af henni bæði á blogginu hennar, á fésbókinni og svo í gegn um sameiginlega vinkonu okkar...
Þessi vinkona mín á son sem er búinn að vera alveg óhugnalega mikið veikur... Þetta byrjaði allt í eyranu á honum og hefur leitt til þess að hann er nú svo gott sem búinn að missa heyrnina. Þau mæðginin eru í táknmálskennslu, því ekki er búist við að heyrnin komi til baka... Ég vil ekki reyna að segja ykkur nákvæmlega hvað það er sem er að hrjá litla drenginn, því ég er því miður ekki alveg 100% viss hvað það er... En allavega var hann á svo hryllilega sterkum lyfjum við þessu sem er að hrjá hann að núna er hann kominn í hjólastól, ef þessara lyfja er neytt of lengi geta þau valdið skaða á taugakerfinu og það eru þau nú búin að gera... Til þess að bæta gráu ofan á svart hjá þessum mæðginum er heilbrigðiskerfið nú búið að ákveða að taka hjólastólinn af þeim...
Hvernig er hægt að leggja svona mikið á einstæða móður og son hennar...
Mér finnst þetta allt eitthvað svo skelfilegt og ég vildi svo óska þess að það væri eitthvað sem ég gæti gert fyrir þessa vinkonu mína...
»
27.01.2009 11:38:58 / Sigga Schatz
...kannski er ég líka bara pínu ponsu vitlaus ;o)
Þannig er að ég fór í Apótekið í Mosó og var að kaupa tannkrem handa Heiðu Máneyju, ég ákvað sko að kaupa eitthvað voða fínt frá Weleda, ægilega snobbuð... Ég ákvað að fyrst ég var að þessu á annað borð, að kaupa bara líka tannbursta handa henni og þarna kemur í ljós hvað ég er óheppin/vitlaus. Ég borgaði nefnilega heilar SJÖHUNDRUÐKRÓNUR fyrir barnatannbursta... Mér fannst það svo sem ekkert voðalega mikið, fyrr en ég fór í Bónus, sem er hinumegin við ganginn... Þar kostaði nákvæmlega eins tannbursti rétt rúmar ÞRJÚHUNDRUÐKRÓNUR!!!
Þetta er náttúrulega bara BILUN!!! 
»
19.01.2009 09:16:53 / Sigga Schatz
Hvað er fátækt?

Dag nokkurn tók mjög efnaður maður son sinn með sér í ferð út á land í þeim tilgangi að sýna honum hvernig fátækt fólk býr. Þeir dvöldu í tvo daga og tvær nætur á sveitabýli sem myndi teljast fátæklegt. Á heimleiðinni spurði faðirinn son sinn hvernig honum hafi þótt ferðin. ,,Hún var frábær, pabbi," sagði drengurinn glaður í bragði. ,,Sástu hvernig fátækt fólk býr?" spurði faðirinn. ,,Ó já," sagði sonurinn. ,,Það fór ekki á milli mála." ,,Jæja, segðu mér þá; hvað lærðir þú af þessari ferð?" spurði faðirinn. ,,Ég sá að við eigum bara einn hund en þau eiga fjóra," sagði sonurinn. ,,Við eigum sundlaug sem nær út í miðjan garð en þau eiga læk sem engan enda tekur. Við erum með innflutt ljósker í garðinum en þau hafa milljón stjörnur sem lýsa þeim veginn á næturnar. Veröndin okkar nær alveg að framgarðinum en þau hafa allan sjóndeildarhringinn. Við eigum smá blett til að búa á en þau eiga akra sem ná eins langt og augað eygir. Við höfum þjónustufólk sem þjónar okkur en þau þjóna öðrum. Við þurfum að kaupa okkar mat en þau rækta sinn. Við erum með háa girðingu til að verja okkur en þau eru umkringd vinum sem verja þau." Faðir drengsins var orðlaus. Þá bætti sonurinn við: ,,Takk pabbi, fyrir að sýna mér hve fátæk VIÐ erum."
 
»
31.12.2008 12:31:32 / Sigga Schatz
Þetta verður bara stutt og lagott núna!!!
Hef sko alls ekki verið að standa mig, hvorki hér né á öðrum síðum hér á alnetinu... En... ég er búin að skella inn öllum desembermyndum fram að jólum á síðuna hennar Heiðu Máneyjar... Restin kemur vonandi bara á morgun/næsta ári ;o)
En núna langar mig bara að segja:

Hoppið hægt yfir áramótin ;o)
Já og ég vona að þið hafið öll komist klakklaust í gegn um jólin ;o)
 Skál fyrir nýju ári 2009!!!
»
09.12.2008 18:16:54 / Sigga Schatz
Já vá, það eru alveg átta sem kikka reglulega við hérna og tékka á mér... Gott að vita það ;o) Ég er þá að spá í að gera þessum átta greiða og henda inn eins og einni færslu í viðbót... svo er aldrei að vita nema maður haldi bara áfram...
En eins og þið vitið þá er/var ég í fæðingarorlofi... Er sko komin í sumarfrí núna og verð í lok des í launalausu leyfi, þannig að ég fer ekkert að vinna fyrr en eftir áramót. En þá tekur alvaran við... Þá þarf ég að yfirgefa frumburðinn í fyrsta skipti í meira en fjóra tíma... Ég er farin að kvíða alveg óhugnarlega mikið fyrir þessu, en þeir sem til þekkja segja að bæði ég og frumburðurinn höfum gott af þessu ;o) Það sem mér finnst verst er sko að ég er að fara í 100% starf, sem þýðir að Heiða Máney þarf að fara í 100% leikskóla- eða dagmömmuvistun!!! Fyrstu tvo mánuðina verður hún nú reyndar heima hjá pabbanum sínum... Það er náttúrulega frábært að geta verið í fríi í desember... Maður ætti að hafa nægan tíma til að undirbúa jólin, en ef ég þekki mig rétt verða jólin komin áður en ég veit af ;o) Ég ætla sko að gera geggjað mikið... Baka, taka til og skrúbba, kaupa pakka, skrifa og senda kort, setja upp jólaskraut og svona mætti lengi telja... En... í staðin fyrir að gera eitthvað af undantöldu, skelltum við mæðgur okkur barasta til Akureyrar um helgina og áttum þar dásamlega fjóra daga... Það er nú alltaf voða ljúft að komast út úr skarkala höfuðborgarinnar ;o)
Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili og fara að að sinna bæði barni og gesti, já og kannski karli líka ;o)
Bestu kveðjur Sigríður sjálf 
»
Síður: 1 2 3 ... 25
|
Heimsóknir
Í dag: 8 Alls: 168238
|